BJARNI THOR KRISTINSSON

leikstjóri

leikstjóri — mynd 1

Fidelio - Gissur Páll Gissurarson í hlutverki Jaquino. Leikgerð og leikstjórn: Bjarni Thor Kristinsson - Harpa 2021

Óperur og samtíminn

Í óperu mætast tónlist og sviðslistir og mynda heild sem er stærri en summan af texta og tónum. Þegar vel tekst til verður úr tilfinningaleg og dramatísk upplifun sem snertir áhorfendur á fleiri en einn hátt.

List lifir ef hún á erindi við samtímann. Margar eldri óperur hvíla á gildum sem breyst hafa í tímans rás, en um leið innihalda þær mannleg átök og tilfinningar sem eru óháð sögulegu samhengi. Áskorunin felst í því að varpa nýju ljósi á þessi verk án þess að breyta kjarna þeirra.

Mörgum finnst óperur vera „hámenning“ sem aðeins eigi erindi við fá útvalda. Þessu viðhorfi þarf að breyta því það byggir á misskilningi.
Óperuformið er
Ef listformið á að eiga lifandi framtíð þarf að vinna gegn þeim hugmyndum. Ný verk eru hluti af þeirri þróun, en jafnframt felst mikil áskorun í því að nálgast eldri verk með fersku sjónarhorni og opna þau fyrir nýjum áhorfendum.

Sem leikstjóri reynir Bjarni Thor að finna hvaða sjónarhorn og túlkun eigi erindi við samtímann. Meginmarkmiðið er miklu frekar að láta sýningar valda djúpstæðum hughrifum frekar en að áhorfendur dáist að „sniðugum lausnum“.

leikstjóri — mynd 8

Mærþöll - Eyjólfur Eyjólfsson og Gunnlaugur Bjarnason. Leikstjórn: Bjarni Thor Kristinsson - Gamla bíó 2022

leikstjóri — mynd 10

Hér kemur önnur mynd

Leikstjórnarferill

Eftir að hafa leikstýrt söngnemendum í mörg ár vann Bjarni Thor með atvinnusöngvurum í fyrsta skipti árið 2017 þegar hann setti upp Viðburðastjórann (Der Schauspieldirektor) eftir Mozart í eigin leikgerð og þýðingu í Iðnó.

Eftir það fylgdu Þrymskviða e. Jón Ásgeirsson, Fidelio, Don Giovanni, Mærþöll e. Þórunni Guðmundsdóttur, Cosi fan tutte og Brúðkaup Figarós; þær tvær síðastnefndu í samstarfi við Kammeróperuna.

Cosi fan tutte - Unnsteinn Árnason - Iðnó 2022

Fyrirsögn

Eftir að hafa leikstýrt ungum söngvurum í námi um nokkurt skeið setti Bjarni Thor upp óperuna Der Schauspieldirektor í Iðnó með atvinnusöngvurum sumarið 2017. Eftir það hafa uppfærslur af Fidelio, Þrymskviðu, Don Giovanni, Mærþöll, Cosi van tutte og Brúðkaupi Figarós fylgt í kjölfarið; þær tvær síðastnefndu í samstarfi við Kammeróperuna.