Fjóla Kristín Nikulásdóttir og Lilja Guðmundsdóttir í hlutverkum í sínum í Der Schauspieldirektor eftir Mozart sem flutt var í íslenskri þýðingu í Iðnó árið 2017 og svo aftur í Skjólbrekku árið 2025. Farin var sú leið að staðfæra verkið líka og var titill þess þýddur í Viðburðastjórinn.
Skiptar skoðanir eru á því hvort flytja eigi óperur alltaf á frummálinu eða hvort áhorfendur njóti verkanna betur ef þeir skilja textann. Í leikhúsi eru erlend verk næstum undantekningarlaust þýdd og jafnvel staðfærð en óperur eru hins vegar oftast „textaðar“.
En hversu trú þarf þýðing að vera stað og stund upprunalegu sögunnar? Er sagan tímalaus eða skiptir sögusviðið sjálft miklu máli? Hvað er gott að staðfæra og hvað ekki?
Blæbrigði tungumálsins sem tónlistin er samin við eru líka oft mikilvægur hluti af verkinu sjálfu. Þannig finnst mörgum t.d. skrítið að hlusta á Carmen á öðru tungumáli en frönsku.
Staðfærsla getur verið skemmtileg leið til þess að skapa sterkara samtal við áhorfendur sem tengja þá oft betur við raunverulegt innihald sögunnar. Staðfærsla í þýðingu nýtist hins vega oft illa ef setja á verkið upp aftur í sömu þýðingu þar sem hún tengist oft ákveðinni hugmynd sem lagt var af stað með í upphafi.
Í þýðingu og staðfærslu Kammeróperunnar á Cosi fan tutte var sagan færð til Reykjavíkur á þriðja áratug síðustu aldar. Systurnar í verkinu urðu staðarhaldarar í Iðnó og þegar kærastar þeirra sneru aftur voru þeir ekki dulbúnir sem Albanir, eins og í upprunalega textanum, heldur birtust sem hippar frá sjöunda áratugnum. Með því breyttist framandleikinn úr landfræðilegum í tímalegan — án þess að ganga þó á kjarna verksins.
Dorabella hrífst af Guglielmo sem hefur dulbúið sig sem hippa. Unnsteinn Árnason og Kristín Sveinsdóttir í sýningu Kammeróperunnar á Cosi fan tutte í Gamla bíó árið 2022.
Eggert Reginn Kjartansson í hlutverki nornarinnar í óperunni um Hans og Grétu sem sýnd var á vegum Kammeróperunnar í Tjarnarbíói. Íslensk þýðing: Bjarni Thor Kristinsson.
Þýðingar og staðfæringar
Bjarni Thor hefur þýtt fjórar óperur í heilu lagi yfir á íslensku, þar af þrjár eftir Mozart: Der Schauspieldirektor (Viðburðastjórinn), Cosi fan tutte og Brúðkaup Figarós. Í þeim tveim síðastnefndu var sönglesunum (recitative) breytt í samtalssenur.
Þorsteinn Gylfason gerði á sínum tíma snilldarþýðingu á óperunni Hans og Grétu eftir Humperdink. Þegar Kammeróperan ætlaði að setja verkið upp í Tjarnarbíói árið 2023 var ákveðið að leita til Bjarna með að þýða óperuna aftur, m.t.t. þess hve orðaforði barna hefur breyst frá seinni hluta síðustu aldar.
Pearls of Icelandic song
Tónleikaröðin Pearls of Icelandic Song var verkefni sem Bjarni Thor bæði skipulagði og þróaði. Hann samdi handrit, samhæfði flytjendur og sá um framkvæmd tónleikanna sem fram fóru í Hörpu.
Markmiðið með tónleikaröðinni var annars vegar að kynna íslenska sönglagið fyrir ferðamönnum á Íslandi og hins vegar að veita ungum söngvurum og hljóðfæraleikurum tækifæri til að koma reglulega fram.
Haldnir hafa verið meira 500 tónleikar í röðinni og yfir 50 listamenn hafa tekið þátt.
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari, Lilja Guðmundsdóttir sópran og Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran á tónleikum Pearls of Icelandic song.