BJARNI THOR KRISTINSSON

Óperusöngvari

Óperusöngvari — mynd 1

Í hlutverki Alfred P. Doolittle í My Fair Lady í Kölnaróperunni

Ferill bassasöngvarans Bjarna Thors Kristinssonar spannar vítt svið óperubókmenntanna en hann hefur sungið fjöldamörg hlutverk í óperuhúsum út um allan heim.

Á ferli sínum hefur hann unnið með mörgu af fremsta fagfólk óperusenunnar og Bjarni hefur unnið með með mörgu af fremsta fagfólki óperusenunnar og því kynnst fjölbreyttum áherslum bæði í söng og leik.

Nálgun hans hverju sinni mótast af leit að heildstæðri túlkun þar sem rödd og svið verða að órjúfanlegri heild.

CV - pdf

Kóngur, kjáni og illmenni

Tvö hlutverk hafa verið sérstaklega mikilvæg á ferli söngvarans: Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir W.A.Mozart og Baron Ochs í Rósariddaranum eftir R. Strauss. Hvort hlutverk um sig hefur hann túlkað í mörgum ólíkum uppfærslum og fengið að þróa þær á ólíkan hátt.

Samhliða því hefur Bjarni tekist á við flest bassahlutverk í óperum Richard Wagner, mörg hlutverk í nútímaóperum og fjölbreytta flóru kómískra persóna.

Hlutverkalisti - pdf
Óperusöngvari — mynd 11

Osmin og Blondchen í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir Mozart í Óperunni í Kassel. Bjarni Thor og Lin Lin Fan

Óperusöngvari — mynd 13

Söngvurum fagnað í sýningarlok. Volksoper Vín.

Ferill Bjarna Thor hefur leitt hann á fjölmörg ópersvið út um alla Evrópu og víðar. Fyrstu 3 árin var hann fastráðin við Þjóðaróperuna í Vínarborg en eftir það sneri hann sér eingöngu að „lausamennsku“ og var fyrsta sýning hans sem gestasöngvari við Ríkisóperuna í Berlin.

Berlin, Hamburg, München, Frankfurt, Köln, Dresden, Düsseldorf, Salzburg, Amsterdam, Barcelona, Sevilla, Roma, Palermo, Napoli, Venezia, Stockholm, Lissabon, Monte Carlo, Reykjavík, Chicago, Tokio, Beijing, Melbourne.....

Dýrmæt reynsla

Meðal þeirra leikstjóra sem hann hefur unnið með eru Harry Kupfer, Nikolaus Lehnhoff, Katharina Thalbach, Claus Guth og Robert Wilson, en öll eru þau áhrifamiklir listamenn sem hafa hvert á sinn hátt haft mótandi áhrif á óperuleikhús nútímans.

Að sama skapi hefur hann komið fram undir stjórn nokkurra af fremstu hljómsveitarstjórum samtímans, eins og Kirill Petrenko, Daniel Barenboim og Zubin Mehta svo einhverjir séu nefndir.

Óperusöngvari — mynd 20

Kiri Te Kanawa og Bjarni í hlutverkum Marschallin og Baron Ochs í Rósariddaranum eftir R. Strauss í Kölnaróperunni.

Bjarni syngur Hunding í Valkyrjunni eftir Richard Wagner í Hangzhou í Kína.