Bassasöngvari og leikstjóri með áratuga reynslu í óperu og tónlistarleikhúsi
Sem óperusöngvari er Bjarni Thor þekktur fyrir sterka sviðsnærveru, dökka og hljómmikla rödd og skýran textaframburð. Hann er jafnvígur á dramatík og kómík og leggur áherslu á að tónlist, leikur og persónusköpun myndi eina heild.

„Óperur eiga erindi við okkur öll, en ekki endilega við öll í einu né heldur fyrir öll á sama hátt“
Leikstjórar þurfa að vera óhræddir við að fara óhefðbundnar leiðir og stíga „út fyrir rammann“ þegar viðfangsefnið kallar á það. Þannig geta óperuverk orðið aðgengilegri fyrir fjölbreyttari hóp áhorfenda, jafnt vana óperuunnendur sem þá sem sjaldan eða aldrei hafa sótt óperusýningar.
